Karen Hrund & Alex Árni


Nýjar Myndir Þann 08.05.10



Karen Hrund fæddist á Landspítalanum þann 29 Júlí árið 2004, kl 13.27. Hún var 16 merkur (4010 gr) og 52 cm. Hún var með mikið dökkt hár og blá augu og alveg ótrúlega falleg. Ljósmóðirin hét Kristín Viktorsdóttir.

Hún var skírð í Grafarvogskirkju þann 4 September 2004 og fékk þetta fallega nafn Karen Hrund. Nafnið var valið því foreldrunum finnst Karen svo fallegt og Hrund af því að þeim langaði að gefa ömmu Hrund nöfnu.

Hún byrjaði á Leikskólanum Álfaheiði þann 3 Ágúst 2005, en þá var ég bara 1 árs og 5 daga gömul :)
Flutti mig síðan yfir á Leikskólann Baug, þann 26 Maí 2008. Mér finnst alveg æðislegt í leikskólanum mínum. Sannkallað leikskólabarn :)

Hún hætti á leikskólanum þann 13 júlí 2010 og hefur skólagöngu sína þann 23 ágúst í Hörðuvallaskóla.

src="http://s3.frontur.com/img/14886/20071125213519_0.gif"<

Alex Árni fæddist á Landspítalanum þann 14. desember 2008, kl: 23:25. Hann var 20 merkur (5030 gr) og 55 cm. Hann var með mikið dökkt har og blá augu, alveg ótrúlega fallegur. Ljósmóðirin hét Gréta Hrund

Hann var skírður þann 24. janúar 2009 í Grafarvogskirkju og fékk þetta frábæra nafn, Alex Árni. Alex er útí bláinn og mömmu og pabba finnst það mjög fallegt en Árni er í höfuðið á honum afa mínum.

Hann byrjaði á Leikskólanum Baugi þann 5 Janúar 2010, aðeins 1 árs og 3ja vikna :)


Mamman og pabbinn heita Elva og Logi. Þau eru bæði 30 ára ('80)
Pabbi er kennari og kennir í Salaskóla. Mamma er að vinna á leikskólanum Fífusölum.
Mamman er frá Stöðvarfirði en pabbinn er úr Fljótshlíðinni, en við búum öll í Kópavogi núna.

Við erum svo heppin að vera elskuð útaf lífinu, bæði af foreldrunum og líka af fólkinu í kringum okkur. Við eigum ömmur og afa, frænkur og frændur og það eru allir til í að spilla okkur aðeins of mikið.



Nafnið Hennar Þýðir

Karen merkir "hin hreina" en Hrund er fornt valkyrjuheiti.

Nafnið Hans Þýðir

Alex merkir "hinn mikli" en Árni er dregið af örn




LJÓNIÐ

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.


BOGAMAÐURINN

Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.





ELSKU MAMMA OG PABBI

Ég er með svo litlar hendur,
ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.
Fæturnir á mér eru svo stuttir,
farðu hægar svo ég geti fylgt þér.
Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt, ég skil það ekki.
Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,
þá veit ég að þú ert að hlusta.
Ég hef viðkvæmar tilfinningar,
ekki vera alltaf að skamma mig.
Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið.
Elskaðu mig bara fyrir að reyna.





Andrea Ösp & Hanna Bríet

Stöðvarfjarðarbörnin

Mikael & Eva

Patrik Dagur & Ísabella Sól

Kolka Rún & Bóel Þöll

Saga

Þuríður Kristín

Brynja

Uni Dagur, Signý Pála og Hanna Steina

Ninja Tíbrá & mamman hennar





Leikskólinn

Tákn Með Tali




Þú ert gestur nr. 30294